Margrét Pála er framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. Hún hefur áratuga reynslu af leik- og grunnskólastjórnun, námskeiðshaldi og kennslu og er höfundur Hjallastefnunnar. Hún er útskrifuð frá Fósturskóla Íslands 1981, lauk diplóma í stjórnun frá sama skóla árið 1996, mastersgráðu í uppeldis- og kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 2000 og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Margrét Pála er höfundur bóka og fjölda greina um Hjallastefnuna og önnur uppeldismál og hefur hún m.a. hlotið íslensku Jafnréttisverðlaunin árið 1997 fyrir Hjallastefnuna og riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2006 fyrir frumkvæði í menntamálum.