Nokkrar reglur gilda um vellina
• Aðgangur að velli greiðist í afgreiðslu eins og um hefðbundna sundferð sé að ræða.
• Útiklefar eru notaðir fyrir notendur valla
• Mest má bóka 2 tíma í einu
• Völlur 1 er nær laug og völlur 2 er upp við hús
• Blakarar komi með bolta sjálfir
• Hægt að nota gula sundbolta sem eru á svæðinu ef vill
• Munið að skola sand vel af í útisturtu við turn eða í útiklefum að leik loknum
• Óskir um mótahald sendist á laugardalslaug@itr.is.
• Nauðsynlegt er að afbóka völl verði hann ekki notaður