Skiptinám á vormisseri 2017 - viðbótarumsóknarfrestur
Skrifstofa alþjóðasamskipta auglýsir umsóknarfrest um skiptinám á vormisseri 2017.
Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 500 háskóla víða um heim og árlega taka fjölmargir nemendur hluta af námi sínu við erlenda samstarfsskóla. Skiptinám er metið inn í námsferil við HÍ. Skiptinám veitir tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn og efla tengslanetið, kynnast nýjum menningarheimum og skapar forskot á vinnumarkaði en rannsóknir sýna að vinnuveitendur horfa í auknum mæli til alþjóðlegrar reynslu.
Að jafnaði er einn umsóknarfrestur á ári fyrir haust- og vormisseri. Þrátt fyrir að umsóknum hafi fjölgað verulega er enn laust í nokkrum samstarfsskólum á vormisseri 2017. Því hefur verið ákveðið að auglýsa viðbótarumsóknarfrest fyrir nám á vormisseri.
Umsóknum skal skila ásamt fylgigögnum til Þjónustuborðs á Háskólatorgi fyrir kl. 17.00 þann 12. september.